BÁTAR OG BÚNAÐUR
Fyrirtækið var stofnað 1980 og hefur á löngum starfstíma miðlað fjölda skipa og báta.
Frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á hátt þjónustustig, öryggi og framsækni í störfum en með því að velja okkur sem samtarfsaðila tryggir þú þér bestu fáanlegu þjónustu á sviði skipasölu á Íslandi.
Að koma saman mönnum í viðskipti með þeim hætti að báðir aðilar standa sáttir upp frá samningaborðinu er það sem hefur gert það að verkum að Bátar og búnaður ehf. hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir traust, þekkingu og árangur. Mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð starfsmanna og gagnkvæman ávinning allra hlutaðeigandi í viðskiptunum.
Við höfum reynslu af mismunandi gerðum af bátum s.s aflamarksbátum, krókaaflsbátum, línubátum, dragnótabátum, strandveiðibátum, fjölveiðiskipum, nótaskipum, togurum , frystiskipum, farþegaskipum, sportbátum, seglskútum, snekkjum eða nýsmíði.
Miðlun á kvóta og aflamarki er mikilvægur hluti af starfseminni og við sinnum af kostgæfni miðlun á aflamarkskvóta, krókakvóta , grásleppu- leyfum og öðru slíku.
Við erum að endurnýja söluskrána , endilega hafið samband við okkur Gunnar Þorvaldsson í síma 663 4865, Guðmundur Snorrason í síma 861 9188 eða bogb@batarogbunadur.is (bogb null@null batarogbunadur NULL.is)
Okkar markmið er að veita framúrskarandi þjónustu hvort heldur þú vilt selja eða kaupa.
Við erum með þér alla leið
Opnunartími:_________________
Opnunartími skrifstofunnar er mánudaga – föstudaga 10.00 – 16.00
Hægt er að ná okkur í síma 562 2551 eða 6634865 eða með því að senda okkur tölvupóst á netfangið bogb@batarogbunadur.is (bogb null@null batarogbunadur NULL.is)
Starfsmenn:
Gunnar Thorvaldsson framkvæmdastjóri, sími 66 34865
Hefur áratugareynslu af fyrirtækjarekstri ásamt miðlun flugvéla og skipa.
Guðmundur Snorrason sölustjóri, sími 861 9188
Tæknifræðingur með góða reynslu af sölumennsku.
Gunnar Jón Yngvason
Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali.
Viðurkenndur matsmaður
